29.06.2011 16:12:09 / nannahlin

"nýjar" myndir

ég er búin að smella inn "nýjum" myndum eða þarna myndunum inn sem ég var búin að lofa ykkur að sjá. Þær eru í albúminu "fyrir - eftir - og á meðan". Ég og Berglind hefjum samstarf aftur í Sportstöðinni eftir helgi og komum mér niður aftur, er víst aðeins búin að bæta á mig aftur þ.e. um 3 kg en ég ætla ekki að gráta það alvarlega þar sem ég veit að ég mun ná að hrissta þau af mér aftur. Bootcamp gengur upp og niður en ég náði öllum skráðum æfingum í síðustu viku, bæði BC og lyftingum ;) kv. YY

» 17 hafa sagt sína skoðun

10.06.2011 10:49:20 / nannahlin

nammibindindi næstu 90 daga...

og ég SKAL geta þetta! En til þess að geta þetta hef ég hlutað þetta langa tímabil niður í 28 28 - 28 - 6 (eða 30 - 30 - 30 (ef þið viljið deila sexunni niður)). En þetta tímabil er frá.. wait for it.... 8. júní 2011 til 8. september 2011 og mér skal ekki mistakast ;) Ég er þó ekki búin að vera sérlega dugleg að mæta í ræktina og taka á því. Ég kenni svefnraski og ofurlestri um þetta allt saman þar sem ég er í sumarskólanum að taka lokaáfangann til stúdents. Í þessum áfanga þarf ég að lesa 2 skildubækur (1 skáldsögu og 1 námsbók) og 1 bók til kjörbókarritgerðar og vitiði hvað? Ég er svo stjörf og þreytt á öllum lestrinum að ég sef barasta. Ekki gott! En þá er einbeiti ég mér bara betur að því hvað ég er að láta ofaní mig ;) spurningin um að hafa samband við HaPP eða Shape? hehe og já! ég veit! ég veit! myndirnar eru aaalveg á leiðinni. þær eru bara enn í myndavélinni... over and out! ykkar yndislegust ;)

» 25 hafa sagt sína skoðun

23.04.2011 12:04:31 / nannahlin

Dugnaður hingað til!

Ég er búin að vera frekar dugleg þessa vikuna þó að Bootcampið hafi verið á undanhaldi en fyrsta skokk sumarsins er yfirstaðið og var það tekið á sjálfann sumardaginn fyrsta. Æfingarnar í vikunni hefðu geta talist 8 (þar sem að það eru páskarfrí og fimmtudagsæfingunni var "troðið" inn á miðvikudaginn og skokki þá skellt á fimmtudaginn til að fá e-ja hreyfingu þann daginn) en fór víst bara á 6 þar sem BC datt aðeins uppfyrir í vikunni aðallega út af feimni vegna lélegrar mætingu :S (hef verið að mála íbúð með vinkonu minni langt fram á kvöld) en ég vona að það lagist. Önnur skemmtileg frétt! er hálfnuð upp í 'ræktin x50 - part #2' eða 24 skipti ;) Svo er bara að taka maí í nefið með fisk :P Veit e-r um ca. 31 fiski-uppskrift? meira var það ekki í bili. Jú annars, það styttist í mælingu og ég hlakka til:D kv. YY

» 22 hafa sagt sína skoðun

13.04.2011 15:11:36 / nannahlin

79,0 KG!

Svaf þokkalega fast í morgun svo ég missti af Bootcamp æfingu, sem er svosem ekkert svo skrítið þar sem ég var komin upp í 18 - 19 tíma vöku, þannig að ég steinsvaf :S Þegar ég dröslaði mér framúr í morgun hoppaði ég á vigtina hér heima og mældist 79,0 kg whoop whoop! (svo ég vitni í bókina + sjónvarpsþættina Makalaus eftir Tobbu Marínós). Nú eru bar 20,5 kg í land svo það er kannski ekki svo vitlaust að snúa blaðinu á hlið og lifa á fisk næstu 7, 5 mánuðina (etv. ekki svo vitlaus hugsun, þar sem jú fiskur er hollur). Fólk er víst alveg hætt að þekkja mig út á götu þar sem ég hætti ekki að grennast þessa mánuðina. Ég tók myndir af mér um daginn til að fá að sjá árangurinn minn á myndum. Hendi þeim upp við tækifæri. Ég lofa ;) heyri í ykkur seinna. kv. Ykkar Yndislegust

» 25 hafa sagt sína skoðun

27.03.2011 17:49:07 / nannahlin

''nýjar'' myndir...

í myndasafninu hér til hliðar í albúminu ''fyrir, eftir og á meðan'' TÉKK ITT ÁD!! ;) og endilega látið mig vita ;) kv. Ykkar Yndislegust.

» 21 hafa sagt sína skoðun

20.03.2011 17:01:40 / nannahlin

Kemur hárið upp um þig?

...heilbrigt líferni eða ekki þá kemur hárið víst upp um þig á stundinni. Vissu þið það ekki? Jah. það vissi ég ekki, ekki fyrr en ég hoppaði í klippingu eina helgina og Klipparinn hún Margrét Elísa mín, átti ekki orð yfir skínandi heilbrigðu hárinu mínu, svo silkimjúkt og fallegt, lítið sem ekkert um slitna enda. Hún bara gat ekki hætt að hrósa þessu fína hári. Svo sagði hún mér sögu af strák sem hún þekkir og hefur sko hendur í hári hans reglulega (þar sem hún er klipparinn hans líka) en hann drakk víst e-jar kókflöskur á dag (þið vitið, litlu kók í gleri) og það var víst agalega feitt og leiðinlegt en um leið og hann hætti að drekka kók svona upp á dag þá breyttist áferðin á hárinu hans. Það var hægt að vinna með það betur og ekki eins fitugt og stíft. Þannig að passið ykkur á því hvað þið látið inn fyrir varirnar, hárið kemur upp um ykkur, nema að ykkur sé sama. annars ætla ég ekki að bögga ykkur meir með þessu. kv. YY

» 25 hafa sagt sína skoðun

20.03.2011 13:32:53 / nannahlin

smá játning...

.... Í nýliðinni viku datt ég aðeins á rassinn þar sem ég mætti hvorki í Bootcamp á miðvikudegi né föstudegi :S Nú er bara að standa upp, dusta rykið af rassinum og taka tvöfalda viku í nefið ;) það er að segja mæta á báðar miðvikudags - og föstudagsæfingarnar (klukkan 06:50 og 18:10) og ég mun ekki hlusta á neina þreytu hjá mér hehe *hóst* *hóst* . Það verður samt alveg bókað að ég verð agalega þreytt eftir vikuna hehe tala nú ekki um það ef ég færi út að skokka á móti hehe á þri - og fimmtudeginum oooog svo er Bootcamp æfing á laugardaginn. Talandi um að sjá fram á rangeygða viku haha. Ætli ég sofni aftur í tímanum eins og ég gerði í fyrsta tíma annarinnar vegna pjúra þreytu? hehe vonum ekki. Á e-r Gingsen fyrir mig? hehe eða er málið að drekka double expresso út vikuna? Annars er önnin alveg að klárast, uþb. mánuður eftir, stutt í páskana og próf. Svo tekur sumarskólinn í FB við og eftir það get ég farið að einbeita mér 24/7 að því að móta mig og kannski skera fyrir veturinn :D oh vitiði hvað mér hlakkar til :D það bara styttist og styttist í mótið og mér SKAL takast þetta :D og mánuð eftir keppni er bara að taka þátt í útskrift :D kv. YY PS. sorry að ég skuli blanda skólanum hér inn það er bara svo margt að hlakka til í ár :D og margt að gerast * bekkjar reunion * brúðkaup x2 (í júní (eða júlí) og ágúst) * keppnin * útskrift og svo nottla að leita að e-m stað til að búa á :D

» 21 hafa sagt sína skoðun

17.03.2011 17:18:04 / nannahlin

grátur og gnýstur síðustu 12 vikurnar fyrir mót...

fann þessa grein http://ragganagli.blog.is/blog/ragganagli/entry/531066/ á gamla blogginu hennar Röggu Nagla, sem nú heldur úti heilsupressunni á feisbúkk. Svona mun undirbúningurinn minn ca. vera síðustu 3 mánuðina fyrir mót. Eins gott að taka bara síðasta fagið í sumar held ég barasta sko. Ætli skapstyggðin muni drepa mig þá og æra mömmu upp á 100? Ætli ég verði ekki komin með mitt eigið húsnæði þá? Jú ég held það barasta... allavega! read it and weep! (er þetta ekki titill á lagi eftir Meatloaf?) kveðja, YY

» 21 hafa sagt sína skoðun

14.03.2011 17:51:19 / nannahlin

x 50 í ræktina!

jæja núna eftir 45 mínútur verður það í fimmtugasta sinn sem ég skrái mig inn í sportstöðina :D og það þýðir líka að ég megi HLAUPA út í Sportbæ og kaupa mér fallegu fallegu HUMMEL peysuna í stærð medium!! Gula HUMMEL peysan er MÍN!! LOKSINS! hehe en í aðra hluti... Ég fékk enn eitt hrósið í gær! Vinkona mín kom og sótti mig og hafði orð af því hvað ég væri búin að grennast mikið. En hennar orð voru e-ð á þessa leið "nei! vá! shitt hvað þú hefur grennst!!" og svarið mitt var enn og aftur "já? er það? ég hef ekkert tekið svo mikið eftir því" en á morgun hefst önnur talning upp í 50 skipti og þá er spurning hvað ég redda mér eftir þau skipti. Kannski að ég reddi mér 100 lita augnskuggapallettunni frá E.L.F.?, 120 lita augnskuggapallettunni frá MANLY á ebay?, nýjum íþróttabuxum? (frá PUMA, helst. I know, merkjamella), ný nærföt? möguleikarnir eru endalausir, við sjáum allavega til, það er enn tími til stefnu en byrjum allavega á gulu Hummel peysunni ;) ekki veitir af að endurnýja aðeins fataskápinn. og að enn öðru :D Ég áorkaði því að hræra í túnfisksalat, sjóða egg og elda 1,4 grömm af kjúklingalundum um helgina. svo ég ætti að eiga e-ð í ísskápnum framm eftir viku :D Annað í fréttum annars! Ég hef stundað Bootcamp tímana samviskusamlega undanfarna 12 tíma eða 3 vikur og 1 dag :D agalega stolt af sjálfri mér enda að detta í fjórðu vikuna, tæpar 3 vikur eftir eða 2 og hálf :D og þá er bara mæling! Hlakka til að sjá hvort e-r breyting sé á mælingunni hjá henni Hrafnhildi. annars eru 2 vikur eftir af einkaþjálfuninni hjá Berglindi þennan mánuðinn. Hlakka til að sjá hvað hún hefur í pokahorninu fyrir í næsta mánuði. :D jæja. best að fá sér e-ð í gogginn áður en ég held af stað á aðra æfingu dagsins :D sjáumst. Ykkar Yndislegust

» 23 hafa sagt sína skoðun

01.03.2011 17:46:00 / nannahlin

ooog mallinn haggast ekki...

Ég er búin að heyra allstaðar útundan mér hvað ég er búin að grennast mikið og þá spyr ég í flestum tilfellum á móti "hvar þá helst?". En mallinn hefur voða lítið haggast. Ég segi það ekki að hann hefur skroppið saman heilmikið undanfarna mánuði því nú lít ég út fyrir að vera komin 2 - 3 mánuði á leið ef um meðgöngu væri að ræða því svo nett er bumban á mér en þegar ég sest þá skýst hún út í loftið. Ég sá spegilmynd mína í glugga um daginn í verslun hér í bæ og það er í fyrsta og eina skiptið sem ég sá hvað ég var búin að grennast mikið og guð hvað ég var fegin á sjá það sem að allir í kringum mig sjá :P Fötin hafa vissulega víkkað allvel enda er ég komin með nýjan íþróttatopp því að sá gamli var hættur að gera gang þ.e. að halda brjóstunum á sínum stað á meðan æfingum stendur. Puma buxurnar leka niðrum mig þegar ég reyni að hreyfa mig e-ð í BC eða reyndar eru nike buxurnar líka þannig að ég má ekki hreyfa mig þá leka þær niður. En ég fékk gott ráð við því, bara vera í auka bol og vera með hann innan undir buxunum og svo annan bol yfir, svínvirkar það trix :D sparar mér peninginn í nokkra mánuði í viðbót þó svo að ég sé búin að spotta klæðnað sem mig langar í! Svartar Puma buxur, góðar fyrir útitímana og gul HUMMEL rennilásapeysa sem kostar ekki nema e-ð um 15.000 krónur saman, hmmm mikill peningur en eigulegur fatnaður til margra ára :D en jæja. ég ætla í sund... 8 mánuðir í keppni allir kveðja, YY

» 22 hafa sagt sína skoðun

27.01.2011 16:02:22 / nannahlin

"...eins og ein meðganga í keppni..."

sit hér og reyni að læra á bókasafni F.Su og gengur bara ágætlega. Jæja, kíkti í einkaþjálfun í morgun, aaaaaaaaaaaðeins of seint að vísu en fannst ég hafa farið því ég vaknaði alveg 30 mínútum fyrir mætingu en sofnaði víst aftur og allt í rugli. Mæling í næstu eða þarnæstu viku og hlakka ég mikið til því þá sjáum við kannski e-n mun á mér. Litli mallakúturinn í mér herpist aðeins til af spenningi því um mánaðarmótin er bara heil meðganga fram að keppni eða 9 mánuðir. OMG OMG OMG! Ég hlakka svo til, nú fara blendnar tilfinningar að safnast upp, spenna og kvíði og ég vona að kvíðinn muni ekki buga mig og að ég hætti við. Þá er ég frekar til í að fresta þessu fram að páskum 2012... úú 2012 útrýmingarárið ógurlega :P nei nú er ég farin að bulla. Annars þarf ég að taka mig saman í andlitinu varðandi mætingu í Bootcamp og einkaþjálfunina. Ég er ekki alveg nógu ánægð með mig í þeim efnum því mér finnst frekar leiðinlegt og óþolandi að mæta mínútu í eða á slaginu og eiga þá eftir að skella vatn í brúsa, klæða mig í skóna og jafnvel hita upp. Skemmi ekki fyrir neinum öðrum en sjálfum mér. En úr því að það eru bara 9 mánuðir í keppni þá er um að gera að vera dugleg að skera sig niður, byggja sig upp og smjatta á ofurhollu fæði :D fékk þær athugasemdir frá henni Berglindi í morgun að ég hefði nú skilað inn ekki svo slæmri matardagbók þ.e. dagbókin heilt yfir var fín en innbyrgi helst til of mikið af kolvetnum og því þurfi að fínpússa matarræðið aðeins betur og passa að það haldist svoleiðis sem er e-ð sem ég þarf að vinna að. Það er alltaf gott að hafa e-r markmið í gangi. Er h'aggi? Annars er spinning klukkan 17:10 í dag, bootcamp í fyrramálið og einnig á laugardaginn frá 9 - 11 .. KOMA SVO! MASS'IDDA!" kv. YY

» 24 hafa sagt sína skoðun

08.11.2010 08:53:20 / nannahlin

08.11.2010

jæja 5 námskeiðið mitt í Bootcamp hófst í morgun með mælingu og vá var ég fanta ánægð með árangurinn þrátt fyrir frekar slakan árangur í ræktinni og rúmlega 2 vikna frí (í heildina) frá bootcamp. 15 cm niður gott fólk! fimmtán sentimetrar! 2 niður í fituprósentu eða úr 27% í 25% En ég hef komist að því að það munar 10 í fituprósentu í mælingum milli Berglindar og G. Hrafnhildar en það er besta mál. En nú veit ég líka að ég er ekki að ímynda mér það íþróttafatnaðurinn sé að verða of víður á mig. Það er bara ekkert rugl! ég er búin að léttast um 5,6 kg síðan 21. maí. og svo kemur í ljós hversu margir cm hafa fengið að fjúka í leiðinni en ég ætla að gíska á ca. 30 cm sem er gott og þetta góða má halda áfram að vera gott :D ég skal kannski kvitta hér á síðunni útkomuna þegar ég hef fengið hana í tölvupósti :D Ég prufaði lyftingarprógrammið hennar Berglindar á föstudaginn fyrir brjóst og upphandleggi og OMG! ég varð svooo þreytt í lyftingunum og ég er komin með nýtt uppáhaldstæki til að hata. það eru Curl æfing í tæki. Ég var með 5 kg sem ég gat varla lyft. Ég varð að hjálpa vinstri hendi af stað í byrjun. Húff erfiða erfiða æfing. Þessi æfing gerði það að verkum að ég var þreytt það sem eftir var af æfingunni = alla æfinguna því ég byrjaði á þessu tæki :S planið er að hoppa yfir klukkan 17:10 og kíkja í bodypump með henni Möggu minni og hafa gaman :P Síðan er að sjálfsögðu planið að hoppa í lyftingar klukkan 6:50 í fyrramálið og svo spinning klukkan17:10!! e-r með? :P sjáumst YY

» 27 hafa sagt sína skoðun

04.11.2010 16:33:05 / nannahlin

fyrsta vikan í fitness undirbúningi @ Berglindi.. ekki að byrja vel :S

Jæja! túttan komin með planið í hendurnar eins og nefnt var í síðustu færslu en hvað kemur til? Túttan haggast ekki á þrið- og fimmtudag þessa vikuna vegna e-ja furðulegra ástæðna sem hún kann ekki skil á. Reyndar í dag fimmtudag, er konukvöld í blómaval og túttan frekar óróleg yfir því þó hún hafi nú ákveðið að mæta í ræktina klukkan 16:00 til að vera alveg 'save' með þetta. En túttan er ekki enn farin og klukkan 16:26, með vott af hungurverkjum og er sú ástæða greinileg... túttan er nefnilega ekkert búin að borða að viti í dag. Jú! hún fékk sér hafragraut à la Berglind þegar risið var á fætur upp úr 11 í morgun.Hey hey! ekkert svona! Túttan svaf lítið sem ekkert í nótt + vaknaði upp úr 6:00 í gærmorgun, þannig að það var rétt komið upp undir sólarhring þegar loksins var náð að festa svefn. og já! hin 'máltíðin' var pera rétt um 15:00 í dag :S ætli ég verði ekki að slátra planinu núna næstu 3 daga, það er föst - , laug - og sunnudag. kv. YY

» 22 hafa sagt sína skoðun

02.11.2010 13:33:30 / nannahlin

nú fer boltinn að rúlla, woohoo!

jæja. Þá er fyrsta skrefið tekið í átt að Módel-fitess-keppninni í nóvember 2011. Ég hitti Berglindi í gær um fjögurleytið og fórum við í sameiningu yfir planið sem hún var búin að gera fyrir mig. Einnig sýndi hún mér myndir af fyrri keppnum og ráðlagði mér að kíkja á keppnina núna í mánuðinum til að sjá hvernig þetta er allt uppbyggt og svona til að byrja þetta almennilega þá fékk ég lyftinga og brennsluplan og mældi mig bak og fyrir. Munurinn var heldur mikill hjá Berglindi og G. Hrafnhildi. Ég er í 35% hjá Berglindi en 27% hjá G. Hrafnhildi en það er út af því að Berglind tekur fjagra punkta mælingu en G. Hrafnhildur bara eins punkta mælingu. Ég vissi svo sum að bootcamp fitumælingin sé ekki mjög nákvæm en það er hægt að miða örlítið við hana, eins og að hafa það að markmiði að missa 2 eða meira í % á námskeiði. En engu að síður á ég mikla vinnu framundan. Eitt af því sem hún Berglind sagði var; að þó að það sé ár í keppnina þá megi ég ekki hugsa það sem svo til að missa ekki sjónar af markmiðinu og slaka á. Það er víst bannað. hehe. Og einnig má ég skipta þessu pínu niður, eins og í 2 hluta. Fyrsti hlutinn eru næstu 6 mánuðir og fer í að skera niður og léttast. svo er næsti hluti en það eru mánuðirnir fram að móti eða "síðustu" 6 - 7 mánuðirnir og fara þeir í uppbyggingu. Ég verð að segja það að mig hlakkar til að byrja en ég ætlaði að byrja í morgun en svaf rosalega yfir mig. Ætli ég taki ekki æfingu í kvöld þar sem ég kemst ekki í spinning klukkan 17:10 út af e-u heimafyrir. Og svo er bara að koma út úr skápnum með fitness keppnina við fjölskylduna, ég er ekkert par hrifin af því að koma út með þetta við fjölskylduna þar sem ég veit að ég fengi ekki frið fyrir kaldhæðnum athugasemdum, ég væri mun sáttari að gera þetta bara í mínu horni. kv. YY

» 25 hafa sagt sína skoðun

27.10.2010 17:43:45 / nannahlin

27.10.2010

jeeeja, þá er maður komin með monneyið í hendurnar og það nánast gufaði upp eins og dögg fyrir sólu. En þetta þýðir líka það að ég kemst í einkaþjálfunina hjá Berglindi í viðbót við BOOTCAMP, BODYPUMP, SPINNING og SKOKKIÐ. En ég er kannski ekki búin að vera að stunda þetta allt að svo miklu kappi eins og ég ætti kannski að gera :S En engu að síður nú get ég hafið þetta af alvöru, svo mikilli grafalvöru að ég fæ sixpack við tilhugsunina hehe. Finnst ykkur það ekki líklegt? Annars ætlaði ég að vakna klukkan 5:30 morgun og skunda yfir í Sportstöðina með henni Jenný. En það tókst ekki betur upp en að ég vaknaði 5:59 og rotaðist aftur. Þannig að ekkert var gert í dag hvorki Bootcamp né Bodypump :( ég er ömurlega léleg e-ð núna í vikunni því ekki fór ég í BP á sunnudaginn né mánudaginn og enginn Bootcamp hvorki í dag né mánudag, enginn spinning í gær en ég ætla nú að gera mitt besta til að fara núna á morgun. Matarræðið!!! Nú er bara að kippa upp blessuðum 'GOTT AÐ EIGA Í (ÍS)SKÁPNUM' listanum og fara að versla eftir honum :D Ég vona svo sannarlega að ég nái þessu og láti ekkert stoppa mig... en svona til að auka á kaupgleði mína þá þarf ég nauðsynlega að fara að fjárvesta í nýjum íþróttafatnaði þar sem að fötin mín eru orðin pínu víð á mér. oh! hlakka miiiikið til að skunda í Sportbæ og versla ný FÖÖÖT!!! :D kv. YY

» 21 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 154 dögum
lýkur nammibindindinu!
e-ð um mig fyrir ykkur
Jóhanna Hlín Helgudóttir heiti ég, er 25 ára Selfyssk mær. * Stunda nám til stúdents við Fjölbrautaskóla Suðurlands. * Brautskráðist af Listnámsbraut, fyrri hluta, haustið 2005 frá FSu. Er nú að nema stúdínuna og á lítið eftir :D * Er sjálfstæður dreifingaraðili hjá Herbalife. * Stunda Bootcamp af miklu kappi og líkar það vel en væri til í að bæta meiri hreyfingu inn í mitt daglega amstur...
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  27  Alls: 73244
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 29 júní
Leitarbox

vitleysingarnir á Reykjalundi